Já maður er að missa sig í bloggi eitt í apríl og eitt í maí. Já loksins er komið sumar og þá verður allt miklu betra. Besti tíminn er framundan og allt eins og blómstrið eina..

Já það er allt fínt að frétta skólinn hjá manni er búinn og maður er komin í sumarfrí frá honum i bili. En aðalfréttin hjá mér að þessu sinni er að ég er að verða pabbi. Já hann er ekki það stuttur á mér að hann geti ekki búið til lítið kríli. Fórum einmitt í sónar á síðasta föstudag og það var alveg magnað apparat. Sjá það veifa og svo sjá hjartað slá á fullu, alveg magnað..


En það gengur allt ljómandi vel meðganan og allt sem því fylgir..
En svona af því að það er að koma sjómannadagur þá ætla ég að skella inn Tóta horninu. Þetta er nú bara einkahúmor og aðallega gert fyrir kallana uppi í Álveri... Mestmegnis er þetta mismæli og misskilningur á málsháttum.....
"Eitt skipti á fyllerí niðurí Stálsmiðju þá situr Tóti við borð með með tveim Pólverjum og er að kynna þá fyrir landi og þjóð. "You have Vodka and you can drink it like water, but we have something else, Burning vine (Brennivín). Svo stendur Tóti upp og sér einn Portúgala með agalega ístru og fer að segja honum að hann líti út eins og Þ í laginu. Portugalinn yppti öxlum og vissi ekkert hvað drengurinn var að tala um, svona hélt þetta aðeins áfam með tilheyrandi actionary stellingum og eftir nokkar mínútur þá var þessi Portúgali engu nær þrátt fyrir mikið þras.
Í þessu sama teiti var Tóti orðinn vel fullur. Tóti fer út á stétt og þar eru nokkrir að reykja og þar á meðal hún Silla (best að nafngreina bara) voða fín frú. Tóti fer eitthvað að grínast í henni og leysir niður um sig og glennir bossan í átt að henni og heyrðist þetta ljómandi góða prumpuhljóð. Já helvítið rak við á fínu konuna.

" Að ríða mellu er guðlist, ahh nei ég meinti guðlast."
Eftir einn matartímann í álverinu " Jæja ég ætla að ná mér í peru" kemur svo vappandi með vatnsmelónu.
" Halli þú ferð ekki að kaupa loðdýraföt dýrin eru drepin lifandi."??
" Snöggt skiptir vindur um átt" (skjótt skipast veður í lofti)
"Geturu ekki smítt fyrir mig kofa" (smíðað)
"Barðiru krem á þig" (vont að berja krem á sig, barstu)
"Passaðu munnbragðið" (þá meinti hann orðbragðið)
Við að tala við yfirmenn í álverinu og þá náði Tóti að segja "já þannig er sko að við erum farnir að hugsa okkur um færings"
"Mér finnst gott að éta fjárið" (féð)
"Ertu sign, ah nei ég meina skyggn
Svo var það besta. Halli hvernig kemst maður inná póshólfið hjá hotmail "Farðu inná Hotmail.com. Tóti skrifar það inn en kemst svo að því að það var bara ekki rétt. Upp á skjáinn komu heitir karlar. Þá hafði hann skrifað hotmale.com.. Og fékk bara bera karlmenn..

